Velkomin á vefsvæði sýslumanna. Hjá sýslumönnum nálgast þú ýmsa þjónustu ríkisins, ýmist rafrænt eða með komu á eina af mörgum skrifstofum sýslumanna víða um land. Sýslumenn annast umsóknir um vegabréf og ökuskírteini, innheimta skatta og önnur gjöld, sinna fjölskyldumálum og almannatryggingum og ýmsum opinberum skráningum svo sem þinglýsingum og fleiru.
Kosning utan kjörfundar
Upplýsingar um atkvæðagreiðslu utan kjörfundar hjá sýslumönnum vegna forsetakjörs þann 1. júní 2024
Skírteini og vottorð
Vegabréf, ökuskírteini, P-kort, sakavottorð, veðbókavottorð og skuldleysisvottorð.
Leyfi og löggildingar
Rekstrarleyfi gististaða og veitingastaða, heimagisting, skemmtanaleyfi, happdrættisleyfi, brennuleyfi og ýmis starfsleyfi. Löggilding fasteigna- og skipasala, skjalaþýðenda og dómtúlka, málflutningsréttindi lögmanna, upplýsingar fyrir iðnnema og ökukennara.
Andlát og dánarbú
Andlátstilkynning, dreifing ösku, erfðaskrár, erfðafjárskýrsla, fyrirframgreiddur arfur, skipting dánarbús og fleira.
Fjölskyldumál
Forsjármál, umgengni, lögheimili, utanlandsferðir barna, faðernismál og sáttameðferðir, sambúð og skilnaður. Meðlag, sérstök framlög með barni, framlag vegna menntunar eða starfsþjálfuna og fleira.
Hjónaband
Réttindi í hjónabandi, kaupmálar og giftingar erlendis
Allar þjónustur
Aðrar þjónustur sýslumanna, t.d þinglýsingar, lögráðamál, innheimta, ættleiðingar og fullnustugerðir.
Fréttir og tilkynningar
Skrifstofur embættis Sýslumannsins á Vestfjörðum verða lokaðar föstudaginn 24. maí nk.
vegna starfsmannafundar.
Sýslumenn hlutu Nýsköpunarverðlaun hins opinbera
Sýslumenn hlutu viðurkenningu fyrir brautryðjendastarf við sjálfvirknivæðingu opinberrar þjónustu, og sérstaklega stafræna málsmeðferð dánarbúa